Sveinn litli kemur með tómt glas í hendinni og spyr mömmu sína, Mamma er guð til? já elskan mín. Mamma er guð í næsta herbergi? já elskan mín. Mamma er guð hliðina á mér? já elskan mín. Mamma er guð í glasinu? já elskann mín. Sveinn slær á lokið á glasinnu og segir:ha ha núna náði ég þér

___________________________________________________________



Unglingi var boðið í kvöldverð hjá foreldrum vinkonu sinnar í fyrsta skipti. Eftir matinn fór vinkona hans með mömmu sinni fram í eldhús til þess að vaska upp leirtauið, þannig að eftir sat hann með pabbanum og hundinum Hvutta, sem lá undir stólnum hans.

Því miður þá hafði þetta verið frekar þung máltíð svo hann þurfti að leysa vind. Hann hleypti út örlitlu en þó heyranlegu pústi.

“Hvutti!” hrópaði pabbinn.

“Hey, þetta er flott,” hugsaði drengurinn. “Hann heldur að hundurinn sé að prumpa.”

Svo hann hleypti út öðru pústi.

“Hvutti!” hrópaði pabbinn aftur og aðeins hærra í þetta skipti.

Drengurinn hélt að nú væri hann á fríum sjó, svo hann hleypti öllu út með miklum hávaða og tilheyrandi lykt.
“Hvutti!” kallaði þá pabbinn enn einu sinni. “Komdu þér undan stólnum áður en strákurinn skítur á þig!”

Einu sinni voru þrír fótboltaáhugamenn að þvælast um Sádi Arabíu.

Einn hélt með Leeds, annar með Man. Utd. en sá þriðji með Liverpool.

Auðvitað voru þeir allir fullir, en það er stranglega bannað í Saudi Arabíu, þannig að þeir voru allir handteknir. Svo voru þeir leiddir fyrir sheikinn. Sem sagði." Vegna drykkjuskapar á almannafæri verðið þið allir hýddir 50 svipuhöggum.

En vegna þess að í dag er þjóðhátíðardagur hjá okkur ætla ég að veita ykkur tvær óskir hvorum.

Kom svo að því að hýða átti Leedsarann svo hann bað um að fá kodda bundinn á bakið á sér og bestu fáanlega læknishjálp ef með þyrfti. kom svo að því að hann var hýddur, en koddinn dugði ekki nema í 15 svipuhögg þannig að hann varð alblóðugur og næstum dauður eftir þessa

meðferð. En fékk læknishjálp. Síðan kom að! Unided manninum….Hann sagði ég vil fá tvo kodda bundna á bakið á mér, og ef með þarf þá bestu læknisaðstoð sem um getur.

Svo kom að hýðingunni. koddarnir dugðu í 30 svipuhögg. Blóðugur en á lífi fékk Unided maðurinn góða aðhlynningu og var nokkuð kátur. Loksins kom að Liverpoolmanninum. Hann sgði hátt og snjallt…BÆTIÐI VIÐ 200 svipuhöggum og bindið helvítis Unidedmanninn á bakið á mér! YEHH!!