Maður fer til læknis.

Maðurinn: “Heyrðu, ég skil bara ekkert hvað er að konunni minni”

Læknirinn: “Núh? Hvað er vandamálið?”

Maðurinn: “Hún virðist ekki heyra neitt sem ég segi!”

Læknirinn: “Sendu hana þá til mín”

Maðurinn: “Naahh, ég mundi nú ekki þora því! Hún yrði allof móðguð:S”

Læknirinn: “Það sem þú skalt gera er að standa svona tíu metra frá henni og reyna að segja eitthvað við hana og ef hún heyrir ekki þá færiru þig um svona einn metra nær og spyrð aftur og svo þangað til hún heyrir. Svo læturu mig bara vita hve langt þú komst.”

Nú er konan að elda og maðurinn ákveður að gera það sem læknirinn ráðlagði honum. Hann stendur tíu metra frá henni og kallar: “Hvað er í matinn?”
Hann fær ekkert svar og færir sig einn metra áfram. Hann kallar aftur: “Hvað er í matinn?”
Ekkert svar.. nú svona gengur þetta 3-4 sínnum. Og hann kallar aftur: “Hvað er í matinn?”

Þá svara konan: “Í fimmta sinn!!! það er kjúklingur!!”