Einu sinni var kall að koma af djamminu og var soldið þreittur.
Þegar hann var kominn fyrir utan húsið komst hann að því að húsið var læst svo hann fer bara inn um strompinn.
Svo leggst hann í sófann og sofnar. Síðan eftir nokkra klukkutíma vaknar hann því hann þarf að pissa. Þá sér hann klósett úr gulli og byrjar að pissa, þá fer hann svona að kíkja í kringum sig, þá sér hann að hann er heima hjá nágranna sínum.
Hann drífur sig heim sofnar.
Svo daginn eftir fattar hann að hann gleymdi veskinu sínu hjá nágranna sínum svo hann fer til hanns og þar kemur lítil stelpa til dyra. Hann segir heirðu ég gleymdi veskinu mínu hérna í nótt. Þá hleypur stelpan að pabba sínum og segir: Pabbi! Pabbi! þetta er maðurinn sem pissaði í lúðurinn okkar.