hér er einn mjög góður

Einu sinni var kona að labba í vinnuna og labbaði framhjá gæludýrabúð. Í glugganum í gæludýrabúðinni var páfagaukur sem sagð við konuna: “Hey kona, mikið ferlega ertu ljót”. Konan labbaði bara í burtu. Síðan þegar konan var að labba heim úr vinnunni sagði páfagaukurinn það sama: Hey kona, mikið ferlega ertu ljót“. Þá fór konan inn í gæludýrabúðina og sagð við eigandann að ef hann segði ekki páfagauknum að hætta að segja þetta myndi hún fara í mál við hann. Daginn eftir var konan að labba í vinnuna og gekk fram hjá gæludýrabúðinni. Þá sagði páfagaukurinn: ”Hey kona“ en sagði ekkert meir. Konan labbaði glöð og ánægð áfram. Þá sagði páfagaukurinn:”Þú veist hvað ég meina".