Það var einu sinni kona sem ætlaði að kaupa kattar mat fyrir kisuna sína, hún labbaði 3km i næstu búð og bað um 2 poka af kattar mat þá svaraði konan “ við erum að selja þetta á svo góðu verði að þú verður að koma með köttinn og sanna að þú eigir kött því það eru fátækir menn sem borða þetta frá dýrunum sínum” Nú jæja. Svaraði konan fúl á svipinn og labbaði heim að ná í köttinn sinn. Svo kom hun með köttinn sinn og sagði: Get ég núna fengið kattarmatinn ? “já allt í lagi.”
Daginn eftir kom konan og bað um hunda mat. Sama sagan hún þurfti að koma með hundinn og sanna að hún ætti hund og þá labbaði hun fúl heim náði í hundinn og fékk svo matinn.
Þrem dögum seinna kom konan með kassa inn í búðinna með litlu gati og segir við afgreiðslu konuna “Stingu puttanum ofan í gatið.” Nei, ojj þú ert með eitthvað sem bítur þarna oní, eiturslöngu eða eitthvað dýr. Nei segir konan stingdu bara puttanum ofan í gatið. Afgreiðslukonan stingur puttanum hratt ofan í og kippir honum upp ur gatinu og segjir ojj þetta lyktar eins og einhver skítur
“Já ég ætlaði bara að fá 2 klósett rúllur.”