Þrenn hjón, íslensk, bresk og amerísk, fóru saman út að borða. Þau
spjölluðu saman um daginn og veginn yfir matnum. Allt í einu sneri sá
breski sér að konunni sinni og sagði: “Pass me the sugar, Sugar”.
Skömmu seinna sagði sá ameríski við sína konu “Pass the honey, Honey.”
Þá sneri íslenska konan sér að sínum manni og spurði hann hvers vegna
hann
gæti aldrei verið svona notalegur við sig.
Sá íslenski hugsaði sig um dágóða stund og sagði svo: “Réttu mér
mjólkina,
beljan þín.”