Þrjár mýs sitja á bar og hella í sig vodka skotum og eru monta sig sín á milli. Fyrsta músin skellir í sig skoti og segir hátt: Heh, þessar músagildrur eru drasl, ég tók ostinn af einni um daginn og fór svo í bekkpressu á gildrunni.
Önnur músin fær sér líka skot og þrumar: Sko, þetta sull sem þeir kalla rottueitur er ekki neitt. Ég nota þetta út á kornflexið mitt á hverjum morgni!
Þriðja músin heldur áfram að drekka, skellir svo í síðasta skotinu, stendur upp og segir: Jæja drengir, ég er farinn heim að ríða kettinum!!
—–