Einu Sinni Voru 3 fótbolta áhugamenn í reyki í sádí arabíu.Einn hélt með Leeds, annar með Liverpool. en sá þriðji með Man. Utd..
Auðvitað voru þeir allir fullir, en það er stranglega bannað í Saudi Arabíu, þannig að þeir voru allir handteknir. Svo voru þeir leiddir fyrir sheikinn. Sem sagði." Vegna drykkjuskapar á almannafæri verðið þið allir hýddir 50 svipuhöggum. En vegna þess að í dag er þjóðhátíðardagur hjá okkur ætla ég að veita ykkur tvær óskir hvorum.
Kom svo að því að hýða átti Leedsaran svo hann bað um að fá kodda bundinn á bakið á sér og bestu fáanlega læknishjálp ef með þyrfti. kom svo að því að hann var hýddur, en koddinn dugði ekki nema í 15 svipuhögg þannig að hann varð alblóðugur og næstum dauður eftir þessa meðferð. En fékk læknishjálp.
Síðan kom að Poolaranum….Hann sagði ég vil fá tvo kodda bundna á bakið á mér, og ef með þarf þá bestu læknisaðstoð sem um getur. Svo kom að hýðingunni. koddarnir dugðu í 30 svipuhögg. Blóðugur en á lífi fékk Poolarinn góða aðhlynningu og var nokkuð kátur.
Loksins kom að United manninum. Hann sagði hátt og snjallt…BÆTIÐI VIÐ 200 svipuhöggum og bindið helvítis Poolaran á bakið á mér

———————————————–

Forstjórafrú lenti í eldsvoða og brenndist. Andlit frúarinnar fór verst og þurfti að græða nýtt skinn á hana. Hún var ekki með nóg skinn sjálf í ígræðsluna svo bróðir hennar sem jafnframt er bílstjóri (sendisveinn) forstjórans, eiginmanns hennar, bauðst til að gefa skinn. Það gekk upp og var tekið skinn af rasskinn bróðursins og grætt á kinnar forstjórafrúarinna.
Þegar kinnarnar voru grónar kom forstjórafrúin til bróður síns og vildi launa honum greiðann en hann sagði, „þú ert sko margbúinn að launa mér. Mér er það sérstök ánægja að sjá manninn þinn kissa þig á kinnarnar. Ég þarf ekki meira.“