Bandaríkskur ferðamaður sem var á ferðalagi um Spán fór kvöld eitt sem
endranær að borða á veitingastað í litum bæ þar sem nautaat var stundað
samkvæmt spönskum hefðum. Ferðamaðurinn fékk hlýjar móttökur og eftir að hafa sest niður við eitt borðanna og litið yfir matseðilinn, sá hann að á næsta borði var fólk að snæða hnausþykkar steikur sem voru engu líkar. Ferðamaðurinn kallaði á þjóninn og spurði “ hvað er þetta sem fólkið er að borða hér á næsta borði”  “Ah Senior” sagði þjóninn “ þetta eru nautspungar, algjört lostæti, virkilega frábær matur ” !  “ Ég ætla að
fá það sama ” sagði ferðamaðurinn. “Oh Senoior, því miður” sagði þjóninn “ það er bara eitt nautaat hér á dag og aðeins eitt naut fellt að venju, en ef þú kemur snemma á morgun þá er möguleiki á því að þú getir náð þeim pung sem á borðstólum verður þá” Ferðamaðurinn ákvað að mæta snemma næsta dag og gerði það. Hann pantaði
punginn og þjóninn bar matinn á borð fyrir hann. Ferðamaðurinn leit á
diskinn og fannst pungurinn miklu minni og lélegri en sá sem hann hafði séð deginum áður. Hann kallað i á þjóninn sem kom að vörmu spori að borði hans. “ Af hverju er þessi nautspungur svona miklu minni en sá sem var á borðstólum hjá ykkur í gær ” spurði ferðamaðurinn ??
“Senior…stundum vinnur nautið ”!