Sýruhaus, kókfíkill og hasshaus sátu og plönuðu bankarán sem þeir ætluðu að fara að fremja. Þetta átti að vera rán aldarinnar, (SpK style) svo margt var að gera og græja.
Sýruhausinn sagði við hina: “Sko, við fljúgum þarna inn alveg maður, svífum um svæðið ósýnilegir, tökum peningana maður, og látum okkur svo hverfa skiljiði?”
Kókfíkillinn var ekki alveg á sama máli, tók þessa líka feitu línu af speglinum sínum og sagði“ Við ráðumst bara inní fokkings bankann með baseballkylfur og drepum alla sem fokking segja eða gera eitthvað maður. Tökum allan helvítis peninginn og skjótum okkur leið út aftur, og ekkert helvítis kjaftæði!”
Hasshausinn sat slakari en Larry Flint á jólaballi, saug lengst niður í lungu á kryptonite-inu, the green chronic, og áður en hann blés frá sér tókst honum að staula útúr sér orðunum: “Eigum við ekki bara að gera þetta á morgun!”