Hvernig dó heilasella ljóskunnar?
Úr einsemd

Hvað kallast ljóska með 2 heilasellur?
Ólétt ljóska.

Einu sinni voru ljóska og venjuleg kona úti að labba. Þá sagði venjulega konan :
“æ sjáðu litla dauða fuglin þarna.”
Þá leit ljóskan upp og sagði ha, hvar?

Hvað gefurðu ljósku til að hafa ofan af fyrir henni?
Poka af M&M og segir henni að raða kúlunum í stafrófsröð!

Ljóska sat í bílnum sínum og hlustaði á útvarpið. Útvarpsmaðurinn sagði hvern ljósku-brandarann á fætur öðrum. Að lokum slökkti ljóskan á útvarpinu alveg rosalega reið.
Þegar hún keyrði fram hjá engi sá hún ljósku sitja á miðju enginu í árabát, róa og róa. Ljóskan varð alveg kolvitlaus og stökk út úr bílnum og öskraði á hina ljóskuna: ,,Það er útaf vitlausum ljóskum eins og þér sem allir eru að gera grín að okkur! Ef ég gæti synt út til þín fengirðu sko aldeilis fyrir ferðina!!!!

Ljóskan var orðin ansi illa stæð í fjármálum og ákváð að ræna barni og krefjast lausnargjalds.
Hún fór á leikskóla, tók eitt barnið, fór með það bak við tré og sagði við barnið: ,,Ég hef rænt þér.”
Hún skrifaði orðsendingu á blað sem hljóðaði svona: ,,Ég hef rænt barninu þínu. Settu eina milljón í notuðum seðlum í poka og skildu hann eftir undir grenitrénu við leikskólann, það er lausnarféð.” Undirskrift: ,,Ljóska.” Síðan nældi hún miðanum í peysu barnsins og sendi það heim til foreldranna. Næsta morgunn fer hún á staðinn, og viti menn, þarna liggur pokinn, hún kíkir oní hann og þar er 1 milljón í notuðum seðlum.
Þar er einnig orðsending: ,,Hvernig geturðu gert annarri ljósku þetta?