Fram - Groundhog day
Það sama aftur og aftur og…


Skagamenn - Godfather trílógían
Ris og fall ættarinnar þar sem allir heita Þórður.


KR - Opinberun Hannesar

Kostaði ógeðslega mikið en afar erfitt er að sjá í hvað peningarnir fóru.


Fylkir - Titanic

Þó svo að leikararnir séu huggulegir og hæfileikaríkir þá veist þú að þetta
endar illa.


Grindavík - Fálkar

Fullkomin flatneskja en einn frægur leikari.


FH - Lord of the rings

Lygilega vinsæl sería sem haldið er saman af einum dana.


Víkingur - The Mighty Ducks

Fyrir röð tilviljana lendir gömul íþróttakempa í að þjálfa hóp af
gríslingum með ótrúlegum árangri.


ÍBV - Hvaða íslensk bíómynd sem er

Hæggeng og gróf, en flott landslag.


Keflavík - Fargo

Annar hugsunarháttur, önnur viðmið, annað land?


Valur - Falling Down

Einu sinni byrjað, þú getur ekki hætt…


Þróttur - Das boot

Dramatísk saga um áhöfn sem stendur sig eins og hetjur (þvert á allar
væntingar) aðeins til þess eins að vera skotin niður á lokamínútunum.


Stjarnan - Waterworld

Ha - engir áhorfendur?