Þrjár mýs sátu á bar í mjög slæmu hverfi
um miðja nótt og voru að metast um hver
væri mesti töffarinn. Fyrsta músin skellir
í sig viskí skoti og dúndrar skotinu á barborðið,
snýr sér svo að annari músinni og segir,
“þegar að ég sé músagildru, fer ég upp á hana
og set hana af stað með löppinni. Þegar að
sláin kemur niður gríp ég hana með tönnunum
og lyfti henni 100 sinnum eins og bekkpressu.”

Önnur músin fær sér tvö skot af tequila, tekur
þau í sitthvora hendina og skellir þeim í sig
og grýtir skotunum svo í burtu. Hann snýr sér að
hinum músunum og segir, “Já já, þegar að ég sé
rottueitur safna ég eins miklu af því og ég get
og fer með það heim, síðan bíð ég þar til morguninn
eftir og myl það niður eins fínt og ég get, síðan
set ég það út í kaffið mitt og verð í fínni vímu
allan daginn.”

Núna líta fyrsta og önnur músin á þriðju músina,
þriðja músin lítur á hinar tvær með fyrirlitningarsvip,
andvarpar frekar hátt og segir við þær,
“ég hef ekki tíma fyrir svona helvítis kjaftæði.
Ég þarf að drífa mig heim að ríða kettinum.”