- lognar eða ólongar - stolnar eða óstolnar

Lúðrasveitir eru ágætar á sínum stað,
…utanhúss og nokkra kílómetra í burtu.


Siðferðileg hneykslun er ekkert annað
En afbrýðisemi með geislabaug.


Taktu eftir hvernig maður tekur við lofi,
þá veistu hvernig maður hann er.


Apar hafa vit á að læra ekki að tala, því
þá yrðu þeir látnir vinna fyrir sér


Nefnd eru dýr með fjóra fætur…


Til eru tvennskonar eiginhagsmunaseggir:
Þeir sem viðurkenna það – og svo við hin


Byrjaðu á byrjuninni, haltu áfram þar til þú
kemur að endinum,… stoppaðu þá


Honum var áskapaðir allir kostir hundsins,
nema tryggðin.


Sjónvarpið er áhugaverðara en fólk, annars
myndum við hafa fólk standandi uppvið vegg


Spurt er; Ertu trúuð?
Svar; Það má Guð vita


Hreyfing?? Hana fæ ég nóg af á golfvellinum.
Þegar ég sé vini mína hníga niður, hleyp ég á
eftir lækninum

Hefði ég vitað að ég myndi lifa svona lengi, hefði
ég farið betur með mig


Þegar maður er eins stórkostlegur og ég,
er erfitt að vera lítillátur
Muhammed Ali


Milljónir manna þrá ódauðleika, en vita svo ekki hvað
þeir eiga af sér að gera á regnvotum sunnudegi


Aðdáendur mínur hafa alltaf talið mig glaumgosa,
og almennilegur maður bregst ekki aðdáendum sínum
Errol Flynn, kvikmyndaleikari

Dans er lóðrétt form fyrir láréttar þrár


Grunnrannsóknir kallast það þegar ég veit ekki
alveg hvað ég er að gera
þýskur eldflaugahönnuður

Á himnum er engill ekkert sérstakt


Skrýtið með dýrin. Allir hundar líta upp til manns,
kettir líta niður á mann, það er bara svínið sem
lítur á mann sem jafningja


Kona sem les Playboy líður dálítið einsog gyðingi
að lesa nasistablað
Bandarísk blaða-og kvenréttindakona

Að vera forseti er einsog að stjórna kirkjugarði, það
er fullt af fólki undir manni en enginn að hlusta.
Bill Clinton

Boris Jeltsín er einsog ferðataska án handfangs:
Maður vill eiginlega ekki fleygja henni, en það er
skelfilega erfitt að halda á henni
Dagblað í Moskvu (1996)