Það var einu sinni maður að fara til himnaríkis. Þegar hann kom að Gullna hliðinu sá hann að það voru mjög margar klukkur á hliðinu og spurði Lykla-Pétur af hverju allar þessar klukkur væru þarna.
Þá sagði Lykla-Pétur að hver karlmaður í heiminum ætti eina klukku og hvert skipti sem einhver maður héldi framhjá konunni sinni færðist klukkan hans um 5 mín.
Þá spurði maðurinn: Hvar er þá klukkan hans Clintons?
Hún er inni hjá Guði, hann notar hana sem viftu!