Kona nokkur hringdi í ofboði í brunabótafélagið:

“Brunabótafélagið, góðan dag..”

“Halló! Ég þarf að fá brunatryggingu og það STRAX! Get ég fengið hana í gegnum símann, NÚNA?”

“Nei, það er því miður ekki hægt, en ég skal senda mann til yðar..”

“Það gengur ekki, ég þarf að fá hana strax, það er kviknað í húsinu!”