Gamall maður sat á bekk í Kringlunni þegar ungur maður með hanakamb settist
hjá honum. Hárið hans var gult og grænt með appelsínugulum og purpuralituðum
strípum. Hann var með málaðar augabrýr. Gamli maðurinn starði í forundran á
unga piltinn í nokkrar mínútur. Strákurinn varð órólegur og spurði þann
gamla: “Hvað er þetta eiginlega, hefur þú aldrei
gert neitt villt um dagana?” Gamli maðurinn svaraði: “Jú reyndar, ég datt
einu sinni hressilega í það og hafði kynmök við páfagauk. Ég var bara að
velta því fyrir mér hvort þú gætir verið sonur minn”