Eins og svo oft áður voru tveir einstaklingar að aka bílum sínum.
Þarna var um að ræða konu og mann.
Slysin gera ekki boð á undan sér eins og í þessu tilfelli en bílar þeirra skullu skyndilega saman á hraðbraut einni í útlöndum.
Lánið lék við þau en þau sluppu ómeidd eftir þennan annars harða árekstur.
Konan rankar við sér felmtri slegin, skríður úr bíl sínum og segir:

“Svo, þú ert þá karlmaður, en spennandi. Og ég er kona. Vá, sjáðu bílana okkar!
Þeir eru gjörsamlega í klessu, en sem betur fer slösuðumst við nú ekkert.
Þetta hlýtur að vera tákn frá Guði um að okkur sé ætlað að hittast aftur, vera vinir og búa saman í friði til æviloka.”

Upp með sér stamar maðurinn loks út út sér:

“Ó,já, ég er þér alveg hjartanlega sammála!”

“Þetta hlýtur að vera tákn frá Guði!”
hélt konan áfram,
ég meina sjáðu, þetta er annað kraftaverk.
Bíllinn minn er algjörlega í klessu en þessi vínflaska brotnaði ekki.
Guð vill örugglega að við drekkum þetta vín og höldum þannig upp á heppni okkar og yndislega sameiginlega framtíð sem við eigum í vændum.“

Hann kinkar kolli til samþykkis, opnar flöskuna og drekkur hana hálfa og réttir síðan konunni.
Konan tekur flöskuna, setur tappann í og réttir manninum hana aftur.

Maðurinn spyr:
”Ætlar þú ekki að fá þér?“

Konan svarar:
”Nei. Ég held ég bíði bara eftir lögreglunni…"


BOÐSKAPUR SÖGUNNAR:

Konur eru MJÖG skarpar. Ekki abbast upp á þær.