Hér er einn brandari sem ég samdi sjálf,,, gæti verið að þið hafið heyrt hann því systir mín hefur sagt ÖLLUM hann :/,!!

Einu sinni voru þrjár ljóskur sem fóru upp til himna. Þar hittu þær Lykla Pétur. Hann sagði við þær að þær hefðu verið svo nice og góðar niðri á jörð að þær máttu allar fá eina ósk hver. Þær þyrftu bara að labba í gegnum gullna hliðið og óska sér. Sú fyrsta gekk í gegnum hliðið og sagði: Ég óska þess að fá ljósasta hár í heimi, og hún kom út með ljósasta hár í heimi. Næsta gekk í gegnum hliðið og sagði: Ég óska þess að fá stærstu brjóst í heimi. Hún kom í gegn með stærstu brjóst í heimi. Sú seinasta hugsaði sig vel um, gekk í gegn og sagði: Ég óska þess að verða heimskasta ljóska í heimi. Hún kom í gegn sem karlmaður…!

Mér finnst þetta sjálf alveg drep fyndið! Gefið honum endilega einkunn frá 1 upp í 10!
Vona að enginn taki þetta nærri sér ;)