Einu sinni var Rússi, Bandaríkjamaður og Íslendingur.
Þeir ætluðu á hótel og sáu í bæklingi að þar væri sundlaug og
allskonar möguleikar. Þeir fóru á hótelið og ætluðu beint í sund en svo sáu þeir að það var ekkert vatn í lauginni og sögðu hótelstjóranum það. Hann sagði að þetta væri galdralaug
og þegar maður stykki í hana birtist það sem maður segði í loftinu á stökkinu. Rússinn fór fyrst og sagði vískí og það birtist í lauginni og hann drakk mikið af því. Svo kom Bandaríkjamaðurinn og sagði bjór og það sama gerðist hjá honum. Eftir honum kom Íslendingurinn hlaupandi, rann á bakkanum og sagði SHIT!!!!!! Svo datt hann oní laugina, fulla af skít.