Stilltu sjónvarpið þannig að allir verði grænir í framan. Segðu að þetta eigi að vera svona.


Heftaðu öll blöð í miðjunni.


Hengdu þjófavarnarhnappa á föt fólks sem er að kaupa í matinn.


Fáðu lánaðar spennusögur og skrifaðu nafn morðingjanns á fyrstu síðu.


Kallaðu halló til bláókunnugs fólks sem er að labba hinu megin við götuna.


Vertu alltaf í appelsínugulum fötum.


Sestu við barborð og kláraðu allar smáveitingarnar (hnetur, snakk o.f.l.) sem á því eru.


Borgaðu allt með kínveskri smámynt.


Endurtaktu allt sem aðrir segja eins og spurningu.


Labbaðu á milli borða inni á veitingahúsum og biddu fólk að gefa þér grænmetið.


Talaðu við sjálfan þig í strætó.


Hafðu alltaf kveikt á stefnuljósunum á bílnum.


Láttu hundinn þinn heita Hundur.


Spurðu fólk af hvaða kyni það sé.


Eltu einhvern með hreinsilög og þurrkaðu af öllu sem hann/hún snertir.


Ljúgðu þegar fólk spyr þig hvað klukkan er.


Ekki taka jólaljósin niður fyrr en í október. Hafðu kveikt á þeim allan tímann.


Breyttu nafninu þínu í Jón Aaaaaaaaaaaason og segðu að faðir þinn hafi verið grænlenskur. Segðu fólki að það eigi að það eigi að bera fram öll a-in.


Stattu við umferðargötu og miðaðu hárblásara að öllum bílum sem aka framhjá.


Nagaðu alla penna og blýanta sem þú færð lánaða.


Syngdu með þegar þú ferð á óperu.


Biddu þjóninn um aukasæti fyrir “ósýnilega” vin þinn.


Spurðu skólafélaga þína dularfullra spurninga og skrifaðu eitthvað í vasabók.


Spilaðu sama lagið 50 sinnum.


Búðu til “dularfulla hringi” í grasið í görðum nágranna þinna.


Segðu upphátt einhverjar tölur þegar afgreiðsufólk er að telja peningana.


Bókaðu þig á fund 31. september.


Bjóddu fullt af fólki í veislu annara.
Cinemeccanica