Einn GÓÐUR :o)

..Jeminnn..Demeter..kannski varst það þú sem sagðir mér þessa sögu????? En hér kemur ein sem er bæði hallærisleg og rosalega neyðarleg af sjálfri mér. Er nú ekki alveg viss hvort ég ætti að láta hana fjúka…jú jú.
Sko einu sinni var ég á einhverju heilsufæði sem samanstóð af alls konar baunum…og aukaverkanir af því voru þær að vindgangurinn var rosalegur og hrikalega illa lyktandi…ætla ekki að lýsa honum hér..læt ykkur um að ímynda ykkur þann fnyk!!!

En hvað um það..á laugardagsmorgni þarf ég að bregða mér í Bónus..kallinn vildi bara bíða í bílnum þar sem ég þurfti ekki að gera nein stórinnkaup. En röðin var rosalega löng og ég þurfti að bíða lengi lengi…og mér var mál að leysa vind.
En auðvitað gerir maður það ekki í röð í Bónus…svo ég hélt enn fasta í mér..og var gjörsamlega orðin viðþolslaus þegar það var loksins komið að mér…hrúgapð vörum í pokann og nánast henti peningunum í kassadömuna.
Hljóp svo´út eins hratt og ég komst..hentist inn í bílinn hjá kallinum mínum..og prumpaði og prumpaði og gaf svo frá mér feginsandvarp og sagði hátt…AHHHH..ÞETTA VAR GOTT….um leið og ég snéri mér að kallinum mínum til að útskýra þrautagöngu mína í Bónus.
Stelpur..ég hélt að það myndi líða yfir mig…þegar ég leit á hann og sá að ég var í vitlausum bíl….og maðurinn sem sat við stýrið var ekki maðurinn minn…heldur einhver allt annar kall sem var greinilega að kafna úr skítafílu OG HAMAÐIST VIÐ AÐ SKRÚFA NIÐUR RÚÐUNA SÍN MEGIN.
Ég hélt ég myndi deyja…tautaði einhver afsökunarorð…og tróðst svo bara út úr bílnum..og aumingja maðurinn sagði ekki orð..var líklega alveg að kafna og greinilega skíthræddur við þennan ruglaða prumpustamp. Ég fæ enn illt í magann þegar ég skrifa þetta..og verð rjóð í vöngum af skömm <<…OLE_Obj…>> Ég ætla ekki einu sinni að kvitta undir þessa sögu…..goshhhh!!!!
hehe…:o)
I mean, isn't that just kick-you-in-the-crotch