Nonni litli er í sjötta bekk grunnskóla. Dag einn var samfélagsfræði og
þá spurði kennarinn hvað feður þeirra störfuðu.

Börnin svöruðu eins og þeim er lagið: Pabbi minner lögga,
brunaliðsmaður, skrifstofumaður, vinnur í verslun og svo framvegis. En
kennarinn tók eftir því að Nonni litli var óvenju hljóður og lét lítið
fara fyrir sér.

Hvað gerir svo pabbi þinn, spurði kennarinn Nonna litla.

Hann starfar við að dansa nakinn fyrir framan karla á öllum aldri á
veitingastað
á kvöldin og á næturnar. Svo græðir hann fullt á því að fara með þeim
áhorfendum sem best bjóða út í portið á bak við veitingastaðinn þar sem
hann dansar einkadans fyrir þá í nokkrar mínútur.

Kennarinn varð eðlilega mjög undrandi yfir svari Nonna litla og í miklu
fáti skipaði hann hinum krökkunum að fara að lita, en Nonna litla tók
hann afsíðis.

Er þetta alveg satt sem þú sagðir um hann pabba þinn … dansinn og allt
það?

Nei, nei, sagði Nonni litli feiminn. Pabbi vinnur hjá
Kaupþingi-Búnaðarbanka en ég þorði sko alls ekki að segja það fyrir
framan hina krakkana.