Farþegar í flugvél nokkurri voru að bíða eftir að vélin færi þegar tveir menn, í flugstjórabúningum og með sólgleraugu, koma gangandi eftir gangi vélarinnar. Annar þeirra með blindrastaf og hinn með blindrahund.
Vandræðalegur hræðsluhlátur kviðast um vélina þegar mennirnir fara inn í flugstjórnarklefann og loka á eftir sér. Síðan fara vélarnar í gang og flugvélin byrjar að gera sig klára fyrir flugtak.
Farþegararnir eru farnir að skima í kringum sig og bíða eftir að einhver komi og segi að þetta sé bara grín, þegar vélin gefur í og fer hraðar og hraðar en virðist ekkert vera á leiðinni í loftið.
Þegar farþegarnir átta sig á því að þau stefna beint í stöðuvatn við enda brautarinnar í stað þess að taka á loft byrja allir að öskra í hræðslukasti, en einmitt þá tekur vélin sig mjúklega á loft eins og ekkert sé.
Inn í flugstjórnarklefanum segir aðstoðarflugmaðurinn við aðalflugmanninn:
“Veistu Binni! Einn góðan veðurdag eiga þau eftir að öskra of seint… og við deyjum öll!”

—-

Flugvél var nýkomin í loftið frá Keflavík og flugstjórinn var að ávarpa farþegana:
“Góðir farþegar, velkomin í flug númer CC888 til Alicante. Þetta er flugstjórinn sem talar. Nú, flugskilyrði eru góð. Við fáum meðvind og komum til með að fljúga í 33.000feta hæð og… AAAAAARRGG, GUÐ MINN GÓÐUR, HVAÐA…”
Löng þögn…
Síðan kemur flugstjórinn aftur í kallkerfið:
“Góðir farþegar. Þetta er flugstjórinn sem talar. Mér þykir leitt ef ég hef hrætt ykkur áðan, en aðstoðarflugstjórinn missti kaffibollann sinn yfir mig. Þið ættuð bara að sjá framan á buxurnar mínar…”
“Það er ekkert,” kallar einn farþeginn, “hann ætti að sjá aftan á mínar!”