Eldhúsreglur
1. grein: Í þessu eldhúsi er öll neysla áfengis stranglega bönnuð.
2. grein: Þrátt fyrir ákvæði fyrstu greinar er heimilt að neyta hvítvíns með fiski.
3. grein: Til hvítvíns teljast í reglum þessum allir drykkir með áfengisinnihald að hámarki 2,25% eða meira.
4. grein: Fiskur, samkvæmt annarri grein reglna þessara, telst allur matur nema hafragrautur.
5. grein: Verði hafragrautur á borð borinn skal hann þó einnig teljast fiskur.
6. grein: Sé enginn matur á borð borinn, fellur fyrsta grein reglna þessara úr gildi.