<a href="http://www.hugi.is/tiska">www.hugi.is/tiska</a>

Alveg frábær síða, höfundur setur sig í spor ráðvilltra unglingsstúlkna sem taka fyrir ýmis ómerkileg mál og ræða þau til hlítar, sem dæmi má taka neon hitt og þetta, plastglingur, legghlífar og brúnkukrem sem smyrja ber á síðhærða drengi.

Einnig hafa þær einstakt lag á því að ofnota upphrópunar merki en eru því miður of uppteknar af hárinu á sér til að nota rétta málfræði.

Og munið: Óþægilegar merkjavörur sem allir ganga í eru betri en þægileg föt að eigin vali. Já krakkar mínir, það er kúl að vera eins.