Það var einu sinni maður á bar með bjór glas fyrir framan sig og drakk það ekki en bara horfði á það. Svo kom svona trukkabílstjóri og drekkur bjórglasið til síðasta dropa. Og þá fer allt í einu maðurinn sem átti bjórglasið að hágrenja og trukka bílstjórinn sagði “hey þetta var bara smá djók þú þarft ekki að taka þetta svona alvarlega hérna ég skal kaupa handa þér nýjann bjór” þá sagði hinn maðurinn “nei það er ekki það sko það er bara ég er búinn að hafa ömurlegann dag. Sko first svaf ég yfir mig og varð seinn á mjög mikilvægann fund í vinnuni og varð rekinn. Svo þegar ég kom út úr vinnunni þá var búið að stela bílnum mínum þannig að ég þurfti að taka taxa heim og þegar ég kom heim fattaði ég að ég hafði gleymt veskinu mínu í taxanum og svo fór ég inn og sá konuna mína vera að halda fremhjá mér með póstinum og svo einmitt þegar ég er að fara að binda enda á þetta ömurlega líf mitt kemur þú hingað og drekkur eitrið mitt!!!”

Vona að þú hlæjir rassinn af þér!!!!