Kona frá Húsavík var að versla í Rúmfatalagernum í Smáranum.
Hún ákvað að fá sér kaffi þegar hún var búin að því og fór á staðinn sem er við hliðiná Rúmfatalagernum. Hún keypti sér kaffi og kit kat og fór svo að leita af borði. Það var frekar troðið þarna og ekkert laust borð. Hún gekk þess vegna upp að manni sem sat einn með kaffið sitt og spurði hvort hún mætti setjast. Það var ekkert mál. Þegar hún var sest sá hún að hana vantaði skeið og fór hún að ná í hana. Þegar hún kom til baka sá hún sér til mikillar undrunar að maðurinn var búin að opna kit kat-ið og var að borða eina stöng. Hún sagði nú ekkert en var frekar móðguð og fékk sér eina líka. Maðurinn teigði sig svo í aðra stöng og þá var bara ein eftir og konan ætlaði sko aldeilis ekki að gefa honum hana og reif hana til sín og borðaði. Henni var nú ekki alveg sama og hugsaði í hljóði hvílíkur dóni maðurinn væri. Maðurinn stóð síðan upp og fór og keypti sér kökusneið. Þegar hann kom til baka þá fannst henni alveg upplagt að leika sama leik og hann. Hún tók skeiðina sína og byrjaði að borða af kökunni. Svo borðuðu þau saman kökuna á met tíma og þegar það var búið horfði hún hlakkandi á manninn. Hún var búin með kaffið þannig að hún stóð upp og fór að bílnum sínum. Þegar þangað var komið ætlaði hún að taka upp bíllyklana sína og hvað haldiði að hafi verið í vasanum??? Kit Kat-ið hennar.


—————————————— ————————


Maður ruddist inní sæðisbankann með lambhúshettu á hausnum og veifandi haglabyssu. Hann stökk að afgreiðsluborðinu, miðaði á konuna þar og öskraði: “Opnaðu skápinn strax!” Afgreiðslukonan stamaði: “Þetta er sæðisbanki, við höfum enga peninga.” “Opnaðu bara helvítis skápinn!” öskraði maðurinn. Afgreiðslukonan fór þá á bakvið með manninn og opnaði kæliskápinn þar sem sæðið var geymt. “Taktu nú eitt svona glas og drekktu úr því” skipaði maðurinn. “Veistu hvað þetta er?” spurði afgreiðslukonan. “Já, ég veit hvað þetta er, drekktu!” sagði maðurinn og otaði að henni haglabyssunni. Konan drakk úr glasinu með erfiðismunum. “Drekktu úr öðru glasi” skipaði maðurinn. Konan tók annað glas og drakk úr því líka. Þá tók maðurinn af sér hettuna og konan sá að þetta var eiginmaður hennar. “Hvað ertu að gera?” spurði konan. Þá sagði maðurinn: “Sko, ég sagði þér að þetta væri ekkert mál.”