Hvaða rör eru sæt?
-Lakkrísrör-

Hvar eru bestu gleraugun notuð?
-Á nefinu-

Hvað er það sem er of lítið fyrir
einn, en of mikið fyrir þrjá?
-Leyndarmál-

Í hvaða húsi vill enginn búa?
-Tukthúsi-

Hvaða rót vex ekki?
-Kvaðratrót-

Hvað hefur fingur en engar tær?
-Hanskar-