Hér eru nokkrar spurningar sem heimskur maður getur spurt en 10 vitringar geta ekki svarað

*Hvað eru fiðrildi með í maganum þegar þau eru ástfangin?

*Hvers vegna eru hermenn í borgarastyrjöld?

*Af hverju er síðasti söludagur á sýrðum rjóma?

*Hvað telja kindur þegar þær geta ekki sofnað?


*Eru haldin kaffihlé í teverksmiðjum?

*Af hverju kallast maður sem talar dónalega við konu
karlrembusvín
en fær kona sem talar dónalega við karlmenn borgað á mínútuna?

*Hver er hraði myrkursins?

*Af hverju nota kamikazeflugmenn hjálm?

*Af hverju er framleitt Whiskas með kjúkling, Whiskas með nautakjöti, Whiskas með fiski,
en ekki Whiskas með mús?

*Er fullur tölvudiskur þyngri en tómur?

*Ef geðklofi hótar að fremja sjálfsmorð, kallast það þá gíslataka?

*Af hverju svarar símsvarinn aldrei þegar hann er spurður?

*Ef maísolía er gerð úr maís og olívuolía úr olívum, hvernig er því háttað með barnaolíuna?

*Ef sund er gott fyrir handleggi og fætur, af hverju eru fiskar með hvorugt?

*Af hverju eru seldar sígarettur á bensínstöðvum þegar það er bannað að reykja þar?


*Ef bannað er að aka bíl drukkinn, af hverju eru þá bílastæði við bari og kaffihús?

*Hvernig kemst bílstjóri sanddreyfibíls í vinnuna á morgnana?

*Ef ekkert festist við Teflon-húð, hvernig er hún þá fest við pönnuna?

*Fá fiskar, eins og fólk, krampa ef þeir fara í sund strax eftir matinn?

*Hvað kallast plastið sem er á endum skóreimanna þinna?

*Af hverju er hægt að læsa búð sem er opin 24 klst 365 daga á ári?

*Svarti kassinn í flugvélum lifir öll slys af, af hverju er flugvélin sjálf ekki gerð úr sama efni?

*Eru vegvísar til blindraskólans á blindraletri?

*Hver fann upp á að mjólka kýr
og hvað hélt hann að hann væri að gera þegar hann byrjaði á því?

*Af hverju finnur maður alltaf bara einn skó í vegarkantinum?

*Hvað verður um gúmmíið sem slitnar af hjólbörðum?

*Til hvers eru hvítu hálfmánarnir á nöglunum þínum?

*Brauðsneið dettur alltaf þannig að smjörið lendir á gólfinu.

*Hvað myndi gerast ef maður myndi binda brauðsneið á bakið á ketti og láta köttinn detta?

*Afhverju er Tazan ekki með skegg?

*Núna er ártalið miðað við krist (f.kr & e.kr)en hvað miðaði fólk við fyrir krist?
-_-_-_-_-_-_-_-_-_-_-_-_-_-_-_-_-_-_-_-_-_-_-_- _-_-_-_-_-_-_-_-

Vonandi skemtuð þið ykkur vel
Þú getur sjálfum þér kennt um allar stafsetningarvillur!