Einu sinni var maður sem hét Kristján. Hann var þeim galla búinn að þegar vinnufélagarnir töluðu um einhvern þá þóttist hann þekkja hann.

Einn daginn í vinnunni í kaffihléinu voru menn að tala um Björk Guðmundsdóttur. Þá heyrðist í Kristjáni: “Já, Björk, hún er nú góð stelpa”.

Vinnufélagi: “Kristtján, þekkir þú Björk” Kristján: “Já, hún er mjög fín”

Vinnufélagi: “Djöful… kjaftæði

Kristján, Við erum komnir með nóg af þessu. Þú þykist þekkja alla. Í guðana bænum hættu þessu kjaftæði og haltu þessu fyrir sjálfan þig.

Nokkrum dögum síðar í vinnunni

Vinnufélagi: ”Strákar, Svíakonungur er víst að koma til landsins á morgun“ Kristján: ”Já Svíakonungur, það er nú góður karl“

Vinnufélagi: ”Þekkir þú líka Svíakonung“

Kristján: ”Já, ég þekki hann mjög vel“

Eins og áður sagði voru vinnufélagarnir búnir að fá sig full sadda á þessu kjaftæði í Kristjáni og létu þetta sem vind um eyru þjóta. Daginn eftir var Kristján ekki í vinnunni og þótti mönnum það mjög einkennilegt. Sama kvöld í fréttum sást Kristján flugvelli í móttökunefnd að taka á móti
Svíakonungi og heilsuðust Kristján og Svíakóngur með virtum.
Vinnufélagirnir voru mjög hissa og sumir meira að segja trúðu núna þessum sögum Kristjáns. 2 dögum síðar tilkynnti yfirmaður vinnunnar að hann ásamt konu sinni væri að fara til Ítalíu og ætlaði að sjá páfann í Vatíkaninu. Þá heyrðist í Kristjáni: ”Páfinn, Já, Það er nú góður maður“


Yfirmaður: ”Kristján, þekkir þú nú páfann líka“ Kristján:”Já, auðvitað, ansi fínn karl en svolítið gamall“

Yfirmaður: ”Kristján, nú geri ég við þig samning. Þú kemur með okkur til Ítalíu og kynnir mig fyrir páfanum. Ef þú þekkir hann skal ég splæsa á þig ferðinni, ef hann þekkir þig ekki splæsir þú.

Kristján: “ok”

Yfirmaðurinn voru komnir í Vatíkanið í messu og kirkjan var fullsetin.
Þegar messan var búinn gekk Kristján í gegnum mannþröngina og upp að púltinu þar sem páfinn var. Þeir heilsuðust með virktum og töluðu í smá stund saman. Siðan er Kristjáni litið yfir mannþröngina en sér yfirmanninn ekki í fyrstu, loksins kemur hann auga á hann þar sem hann liggur á gólfinu með óráði og fólk stumrandi yfir honum. Kristján hleypur strax til yfirmanns síns og kemur að honum þegar hann er að vakna aftur til lífsins. Kristján: “Hvað gerðist? Varstu svona hissa á þvi að ég þekkti páfann?”
Yfirmaður “Nei , nei þegar þú varst að tala við páfann þá bankaði Robert DeNiro í öxlina á mér og spurði mig: ”Who is that guy standing beside Kristján?
_____________________________________________________________________________