1.Ef þú ert aðeins með einum öðrum í lyftu, bankaðu þá í öxlina á honum og láttu sem það hafi ekki verið þú.

2.Þrýstu á hnappana og láttu sem þú fáir straum, brostu og gerðu þetta aftur og aftur.

3.Spurðu hvort þú megir ýta á takana fyrir aðra. Ýttu þá á ranga hnappa

4.Hringdu á Klepp úr farsímanum og spurðu þeir viti á hvaða hæð þú ert

5.Haltu dyrunum opnum og segðu að þú sért að bíða eftir vini þínum. Segðu halló Viðar (þótt að enginn komi inn) lokaðu dyrunum og spurðu hvernig dagurinn hafi verið hjá honum

6.Misstu penna og bíddu eftir að einhver beygi sig eftir honum fyrir þig. Öskraðu þá: ,,Ég á hann.´´

7.Hafðu myndavél með þér og taktu myndir af öllum í lyftunni

8.Taktu með þér Actionary og biddu alla um að spila við þig

9.Láttu sem þú sért flugfreyja og farðu yfir öll öryggisatriði í lyftunni

10.Spurðu: Funduð þið þetta?

11.Stattu þétt upp við einhvern og lyktaðu af honum reglulega.

12.Þegar dyrnar lokast tilkynntu þá hátíðlega: Þetta er allt í lagi.Haldiði ró ykkar.Dyrnar opnast aftur.

13.Berðu frá þér ósýnilegar flugur.

14.Kallaðu: HÓPFAÐMLAG! Og reyndu að faðma alla í einu.

15.Opnaðu skjalatöskuna þína eða veskið, kíktu laumulega inn í hana og spurðu: Ertu með nóg loft þarna inni?

16.Stattu þögull og hreyfingarlaus með andlitið út í horn.

17.Starðu brúnaþungur á einhvern um stund og segðu svo skelfingu lostinn: Þú ert einn af þeim. Og hipaðu svo.

18.Gerðu sprengjuhljóð í hvert sinn sem einhver ýtir á takka.