Lögfræðingur og ljóska sitja hlið við hlið í flugvél, lögfræðingurinn stingur uppá að þau bregði á leik á leiðinni. Ljóskan er þreytt og vill frekar sofa, en lögfræðingurinn er þrjóskur og tuðar í ljóskunni.
Hann útskýrir:“Sko,ég spyr þig spurningar og ef þú veist ekki svarið, þá borgar þú mér og svo öfugt.” Aftur afþakkar ljóskan og reynir að sofna.
En lögfræðingurinn gefst ekki upp svo hann gerir henni tilboð:“Allt í lagi, í hvert skipti sem þú veist ekki svarið þá borgar þú mér 500kr en ef ég veit ekki svarið þá borga ég þér 50.000kr, ha hvernig líst þér á það.” Þetta hljómar vel og ljóskan samþykkir að taka þátt.
Lögfræðingurinn spyr:“Hvað er langt frá jörðunni til tunglsins?”
Ljóskan þegir, teygir sig í budduna sína og réttir honum 500kall. En svo spyr ljóskan:“ Hvað fer uppá fjall með þrjá fætur en kemur niður með fjóra?”Lögfræðingurinn horfir á hana alveg kjaftstopp. Hann tekur upp fartölvuna sína og fer að leita á netinu, mailar á vini sína en allt kemur fyrir ekki. Eftir klukkutíma eða svo játar hann sig sigraðan og borgar henni 50.000kall, ljóskan tekur peninginn og fer að sofa, lögfræðingurinn samþykkir þetta nú ekki alveg og hnikkir í ljóskuna og krefst svars við þessari spurningu, Ljóskan snýr sér að honum teygir sig í budduna sína og réttir honum 500kall.