* Af hverju ætli maður þurfi alltaf að gá hvort veggur sé nýmálaður,þegar maður sér viðvörun um það?

* Af hverju er Alcoholics Anonymus (AA) (ísl. “Ónafngreindir Alkoholistar” nefndir svo, þegar það fyrsta sem þeir gera á fundum er að standa upp og segja eitthvað á þessa leið: “Ég heiti Halldór og ég er alkoholisti”?

* Skyldi “franskur koss” bara kallast “koss” í Frakklandi?

* Hver ætli hafi verið sá fyrsti sem horfði á kú og sagði: “Ég held ég kreisti þetta dinglumdangl neðan á henni og drekki það sem út kemur?” [Það má einnig orða þetta sem svo: Hvað hélt fyrsti maðurinn, sem mjólkaði kú, að hann væri að gera?]

* Af hverju límist ekki límtúpan saman?

* Af hverju sér maður aldrei fyrirsögnina: “Skyggn manneskja vinnur í lottó”?

* Af hverju er orðið “skammstöfun” svona langt orð?

* Af hverju er hnefaleikahringurinn ferhyrndur?

* Af hverju er appelsínusafi framleiddur úr gerviefnum og uppþvottalögur búinn til úr ekta sítrónum?

* Af hverju er það kallað “rush-hour” einmitt þegar umferðin gengur sem hægast?

* Af hverju er orðið orðabók í orðabókum?

* Af hverju er ekki til kattamatur með músabragði?

* Af hverju eru flugvélar ekki framleiddar úr sama efni og “svarti kassinn” sem er óbrjótandi og erfitt að eyðileggja?

* Af hverju eru allar brauðristar með stillingu sem brenna brauðsneiðar í kolamola sem enginn vill borða?

* Ef maður á jarðarskika, á maður hana þá alveg niður að kjarna jarðarinnar?

* Af hverju geta konur ekki sett á sig maskara án þess að hafa opinn munninn?

* Af hverju klæjar mann alltaf í nefið þegar maður er búinn að óhreinka hendurnar?

* Af hverju er mínútan miklu lengur að líða fyrir utan klósetthurðina en innan?

* Ef ástin er blind, af hverju eru sexý undirföt þá svona vinsæl?

* Hvers vegna vantar okkur alltaf eitthvað af draslinu sem við geymdum uppi lofti í 3 ár, 3 dögum eftir að við hentum því loksins?

* Ef það er satt að við séum hér til að hjálpa öðrum, hvað eru þá hinir að gera hér?

* Ef ólívuolía er búin til úr ólívum, hvaðan kemur þá barnaolían?<br><br>David89.

Heimasíða http://david89.tk
Dabbi…