Ef þú átt systkini sem er yngri en þú endileg prófaðu þetta…!

1. Endurtaktu allt það sem systikini þitt segir.

2. Alltaf þegar þú getur skaltu kyssa og faðma systkini þitt(það er ógeðslega pirrandi).

3. Raulaðu alltaf sömu laglínuna úr einnhverju lagi sem systkini þínu finnst leiðinlegt.

4. Vertu alltaf að garga “padda, padda” (ef systkini þínu er illa við pöddur).

5. Vertu alltaf að taka dótið sem systkini þitt er með.

6. Alltaf þegar systkini þitt er með vini sína í heimsókn, vertu þá hangandi yfir þeim að spyrja einhverra hallærislegra spurninga. Ef þér er hent út, geturðu haldið áfram í gegnum hurðina.

7. Ef systkini þitt er að lesa eitthvað skemmtilegt skaltu verða að pota í það sem systkinið er að lesa,og fikta eitthvað í systkininu!

8. Alltaf þegar systkinið er með vini skaltu koma með þessar smábarnamyndir sem fullorðið fólk elskar að taka af þeim, sérstaklega berum!!!

9. Alltaf þegar þú ert með einnhvern vökva skaltu hella smá á systkinið og segja svo “úpps þetta var óvart”.