Ungur maður ætlaði að gleðja kærustuna sína á afmælisdaginn hennar,þau höfðu
verið lengi saman og eftir dágóða umhugsun þá ákvað hann að kaupa handa
henni loðfóðraðar lúffur-það væri rómantísk gjöf en ekki of persónuleg.

Hann fór í bæinn með yngri systur kærustunnar og hún hjálpaði honum að velja
lúffurnar, sjálf keypti systirin sér nærbuxur.

Afgreiðslukonan ruglaði saman pökkunum þegar hún pakkaði hlutunum inn og
ungi maðurinn sendi óvart nærbuxurnar til kærustunnar án þess að vita af
því.Hann skrifaði hjartnæmt bréf til hennar sem hann lét fylgja pakkanum og
að sjálfsögðu ætlaðist hann til þess að hún læsi bréfið áður en að hún tæki
utan af gjöfinni.
Bréfi var svohljóðandi:

"Ég valdi þessa gjöf vegnað þess að þú ert vanalega ekki í svona þegar við
förum saman út á kvöldin.Ég hefði valið aðeins lengri ef systir þín hefði
ekki verið með mér,en hún er alltaf í svona litlum sem erfiðara er að fara
úr…………

Liturinn er dáldið viðkvæmur,en afgreiðslukonan sýndi mér sitt eintak sem
hún hafði verið í 3 vikur samfleytt á þess að sæist á þeim, ég bað hana að
máta eintakið þitt og hún var virkilega sæt.

Ég vildi óska að ég fengi að klæða þig í gjöfina í fyrsta skipti vegna þess
að ég er viss um að aðrar hendur munu snerta hana áður en að ég fæ tækifæri
til að hitta þig aftur……………..

Þegar þú ferð úr mundu þá að blása í hana áður en þú leggur hana frá þér
vegna þess að hún verður yfirleitt dáldið rök…………..

Ímyndaðu þér bara hve oft ég á eftir að kyssa gjöfina á næstu mánuðum, ég
vona að þú verðir í þeim á laugardagskvöldið………………….

Ástarkveðja.

p.s. Nýjasta tískar er að bretta aðeins upp á þær og láta loðfeldinn snúa út
!!

Kveðja, Fische