Fjórar konur hittust við gullna hliðið. Þar fór þær í röð og Lykla-Pétur spurði þá fyrstu: Ef þú hefur snert lim karlmanns þvoðu þá staðinn sem þú snertir hann á í þessari laug og benti á litla laug svona eins og skírnarfont af stærð. Fyrsta konan lét fingurgóminn á vísifingri ofaní laugina og fékk að fara inn til Himnaríkis. Þá sagði hann næstu konu að gera það sama. Þá stakk hún allri hægri hendinni oní og gekk inn. Allt í einu ruddist fjórða konan fram fyrir þriðju konuna. Þá spurði Lykla Pétur hana reiður af hverju hún ruddist svona fram fyrir hana. Þá sgði konan:Ég ætla sko ekki að skola á mér munnin í lauginni eftir að hún skolar á sér rassgatið.


——————————————————- —-

Hann Jónas var einu sinni staddur á Spáni í viðskiptaferð. Eina helgina ákvað hann að fara á ströndina. Þegar hann loksins fann ströndina tók hann eftir því að þetta var nektarströnd. Þannig að hann reif sig úr öllum fötunum og byrjaði að labba um. Þá sá hann eina spænska konu. Hann benti á milli lappana á henni og sagði:Hvað er þetta? Þetta er þvottavél svaraði konan. Mætti ég kannski fá að “þvo” hjá þér. Jájá sagði konan og þau fóru upp á hótel og “þvoðu”. Daginn eftir fór hann á sömu ströndina og fann sömu konuna. Þá spurði hann hvort hann mætti þvo hjá henni aftur.Þá leit hún upp og sagði:Ef þú hefur ekki meira að þvo en í gær geturu alveg þvegið í höndunum.

—————————————————–

Geimvera fór einu sinni inná hommabar og settist þar við hliðina á manni og potaði þrisvar í hann og sagði blúbb blúbb blúbb. Þá bað maðurinn hana um að hætta. Henni var alveg sama og gerði það aftur Blúbb blúbb blúbb. Þá varð maðurinn orðinn pirraður og sagði:Ef þú gerir þetta aftur sker ég af þær hausinn. En geimveran hélt áfram Blúbb blúbb blúbb. Þá skar hann af henni hausinn en það óx bara annar í staðinn þannig að hann hótaði að skera undan geimverunni ef hún gerði þetta aftur. Geimveran hugsaði sig um en gerði svo aftur Blúbb blúbb blúbb. Þá brjálaðist maðurinn gjörsamlega, reif niður buxnar á geimverunni og ætlaði að skera undan henni en þá sagði hann: Hey það er ekkert þarna, hvernig stundaru eiginlega kynlíf?
Blúbb Blúbb Blúbb


——————————————————

Af hverju keyrði ljóskan útaf?
Hún rakst í stefnuljósið.


Hvernig býr maður til áttavita?
Úr sextán hálfvitum.

Hvaða fiskur lifir á landi?
TÚNFISKUR



Takk fyri