Maður nokkur þurfti að komast á karlaklósettið, en það var upptekið.
Kona, sem þarna var stödd, tók eftir því að maðurinn gekk með stuttum
skrefum og var með örvæntingarsvip á andlitinu. “Herra minn,” sagði
hún, “kvennaklósettið er laust og þú mátt nota það ef þú lofar að
snerta engan takkanna sem eru á veggnum”. Maðurinn var alveg kominn í
spreng og tilbúinn að lofa hverju sem var til að leysa málið.
Þar sem hann sat - og leið nú svo miklu betur - fór hann að horfa á
takkana sem hann hafði lofað að snerta ekki.
Það voru 3 hvítir takkar merktir VV, HL og PP og svo var einn rauður
sem merktur var STT.
Hver myndi svosem vita það þó hann snerti þessa takka?
Hann stóðst ekki freistinguna.
Fyrst ýtti hann á VV. Volgt vatn úðaði mjúklega undirvagninn.
Manninum leið voða vel. Svona lúxus var sko ekki á karlaklósettum.
Í von um áframhaldandi sælu ýtti hann á HL takkann.
Hlýtt loft lék nú um neðri hæðina, honum til ómældrar ánægju.
Nú gat ekkert stoppað manninn.
Hann ýtti á takkann merktan PP og nú birtist púðurkvasti sem púðraði
allt fíniríið. Þvílíkur unaður!
Maðurinn gat varla beðið eftir því að ýta á rauða takkann.
Hann hafði grun um að þar væri ekkert minna en alsælan. ——-
Hann vissi að hann var á spítala strax og hann opnaði augun.
Hjúkrunarkona var yfir honum, með glott á andlitinu. “Hvað skeði? Af
hverju er ég hérna? Það síðasta sem ég man er að ég var á
kvennaklósetti!” “Þú ýttir á einum of marga takka” svaraði
hjúkrunarkonan brosandi. “Rauði takkinn, sem merktur er STT, er
sjálfvirkur túr-tappatogari. Tippið af þér er undir koddanum þínum”.



Hjón ein héldu til veiða í norðurhluta Minnesota. Eiginmanninum þótti
best að fara út á vatn til veiða í birtingu, en eiginkonan kunni best
við sig heima í tjaldi að lesa. Morgun einn kemur maðurinn til baka
eftir nokkurra klukkutíma veiði á vatninu og ákveður að leggja sig.
Konunni dettur þá í hug að fara á bátnum út á vatn, þótt hún væri óvön
bátnum. Hún setur utanborðsmótorinn í gang, siglir út á vatn nokkurn
spöl, leggst við stjóra og fer að lesa. Að nokkurri stund liðinni
birtist veiðivörðurinn á báti sínum, leggur við bát konunnar og segir:
Góðan daginn frú, hvað ert þú að gera hér? -Lesa bók ( eins og það sé
ekki augljóst - hugsar hún) Þú ert hér á bannsvæði, hér má ekki
veiða,
segir vörðurinn Ég er ekki að veiða, ég er bara að lesa, svarar konan
Já, en þú ert með allan búnað til veiða, mótmælir veiðivörðurinn, ég
verð fara með þig í land og skrifa þig upp. Ef þú gerir það, svarar
konar, verð ég að kæra þig fyrir kynferðislega áreitni. En ég hef
ekki
einu sinni snert þig, segir vörðurinn afsakandi. Það er alveg satt, en
þú
hefur allan búnað til þess!