Tveir starfsmenn spilavítis stóðu við spilaborð þegar ákaflega hugguleg
ljóska kom aðvífandi og kvaðst ætla að veðja 20.000 dollurum á eitt númer í
borðinu.
“Ég vona að ykkur sé sama” sagði ljóskan, “en ég er alltaf heppnari þegar
ég er nakin” og þar með svipti hún sig klæðum, studdi á spilahnapp og
skrækti “nú er lag, mig vantar ný föt!”
Síðan hoppaði hún hæð sína og hrópaði “Yes, yes, ég VANN, ÉG VANN!”, þreif
fötin sín ásamt öllum peningunum sem voru á borðinu og hvarf á braut.
Gjafararnir störðu undrandi hvor á annan, að endingu gat annar þeirra
stunið upp: “Á hvaða tölu veðjaði hún?”
Hinn svaraði: “Það veit ég ekki, varst þú ekki að fylgjast með því?”
LÆRDÓMUR: Ljóskur eru ekki allar heimskar, EN karlmenn eru og verða
KARLMENN!
kveðja, sopranos
