Einu sinni þegar það átti að senda þrjá hershöfðingja upp til himna voru þeir stoppaðir af Lykla-Pétri.

Lykla-Pétur sagði: Þið eigið að fara í kapp um hver kemst í gegnum gullna hliðið og þið fáið flottari og betri bíl eftir því sem að þið hafið drepið færri menn!!!

fyrsti hershöfðinginn sagði: Ég hef drepið 1 mann
og hann fékk Ferarri.

Annar hershöfðinginn sagði: Ég hef drepið 10 menn
og hann fékk lélega Mözdu.

Þriðji hershöfðinginn sagði: Ég hef drepið 20 menn
og hann fékk golfbíl.

Svo þegar Mazdan og Ferarri-in voru komnir í mark sáu þeir hvergi golfbílinn. Svo eftir klukkustund voru þeir búnir að fá nóg af biðinni og ákváðu að leita að honum. En eftir að þeir voru búnir að leita í smástund fundu þeir hann skellihlæjandi ofan í skurði.
Og Lykla-Pétur spurði: Hvað er svona fyndið
Og hershöfðinginn svaraði: Ég sá Hitler á þríhjóli!!!!!!
DEMENTE