
KVÖLDSKÓLI FYRIR MENN
Hvert námskeið er 10 vikur og lýkur þeim með skriflegu prófi. Nemendur fá viðurkenningarskjal í lok námskeiðsins, sem þeir geta framvísað á alþjóðlegum markaði.
——————————————- ——————-
Nr. 015501 -Hvernig á að smyrja brauðsneið án þess að setja elhúsið á hvolf. Skref fyrir skref, sett fram á myndrænan hátt. Mánudaga 17.00-18.30
—————————————— ——————–
Nr. 015402 -Klósetpappír,
er það satt að maður eigi sjálfur að setja nýja rúllu á klósettpappírshaldarann? Verkleg æfing á verkstæðinu. Þriðjudaga 18.00-20.00
—————————————— ——————–
Nr. 035603 Á að lyfta klósettsetnunni áður en maður pissar?
Er mögulegt að pissa án þess að hitta gólf, veggi eða setuna?
Verklegar æfingar. Mánudagar 18.30-20.00
—————————————— ——————–
Nr. 035604 Grundvallarmunur á baðherbergisgólfinu og þvottakörfunni.
Mynda, ferla og skipuritasýning. Föstudaga 16.30-21.30
—————————————— ——————–
Nr. 035605 Er mögulegt að vera góður elskhugi til lengri tíma litið?
Farið verðru í grundvallarmuninn á milli ”einnarnætursgamans” og innhaldsríks kynlífs.
Þetta námskeið er í 3 þrepum. ”Það þarf meira en typpi til” ”Tímasetning og alúð í verki” ”Konur elska með öllum kroppnum”. Skriflegt próf og meðmæli ”ástkonu” eru nauðsynleg til að færast á milli þrepa. Mánudaga 17.30-19.00
—————————————— ——————–
Nr. 052206 Tilvistarkreppa
– hefur þú tapað betri helmingnum af sjálfum þér? Stuðningshópar og heimóknir til íþróttamanna sem hætt hafa að leika. Laugard. 19.00-20.30
—————————————— ——————–
Nr. 072407 Lært að leita að hlutum.
Byrjað verður á því að fara í gegnum hvar hlutir eru geymdir vanalega og stress- og öskurviðbrögð æfð. Leikþættir og raunverulegar lífsreynslusögur. Miðvikud. 18.00-21.00
—————————————— ——————–
Nr. 025408 Að gefa konunni blóm og tilligjafir, hefur ekki skaðleg áhrif á heilbrigðið. Sett fram á mynd- og hljóðformi. Föstudaga 17.00-20.00
—————————————— ——————–
Nr. 011709 Heilbrigðir menn spyrja til vegar þegar þeir villast.
Gestafyrirlesarar og dæmi frá raunveruleikanum. Miðvikud. 19.30-21.00
—————————————— ——————–
Nr. 102210 Konan undir stýri.
Er mögulegt að sitja rólegur og hreyta ekki í hana ókvæðum í föstudagsumferðinni. Bílhermir. Mánudaga 18.30-20.00
—————————————— ——————–
Nr. 101811 Hugsum í víddum.
Farið verður í grunnmismuninn á milli mömmur og kærustu/konu
Deilt verður út handók í byrjun, byggist á hlutverkaleik. Þriðjudaga 20.00-21.00
—————————————— ——————–
Nr. 102512 Er hægt að eyða degi í Kringlunni með fjölskyldunni?
Afslöppunnaraðferðir, hugleiðsla og öndunnaræfingar. Föstudaga 15.00-21.00
—————————————— ——————–
Nr. 171513 Hvað er samhengið á milli leikja í enskudeildinni og merkisdaga í fjölskyldunni? Gerð persónulegra samhengiskorta og ”Til hamingju…”æfingar. Þriðjudaga 18.00-19.30
(Þessi grein var ekki samþykkt á greinakubbinn….uhu)
Tobba.<br><br>There is still good in the world, and its worth fighting for!