Hjón ein héldu til veiða í norðurhluta Minnesota. Eiginmanninum þótti best
að fara út á vatn til veiða í birtingu, en eiginkonan kunni best við sig
heima í tjaldi að lesa.

Morgun einn kemur maðurinn til baka eftir nokkurra klukkutíma veiði
vatninu og ákveður að leggja sig.

Konunni dettur þá í hug að fara á bátnum út á vatn, þótt hún væri óvön
bátnum. Hún setur utanborðsmótorinn í gang, siglir út á vatn nokkurn spöl,
leggst við stjóra og fer að lesa. Að nokkurri stund liðinni birtist
veiðivörðurinn á bát sínum, leggur við bát konunnar og segir:

Góðan daginn frú, hvað ert þú að gera hér? -Lesa bók ( eins og það sé ekki
augljóst - hugsar hún)

Þú ert hér á bannsvæði, hér má ekki veiða, segir vörðurinn Ég er ekki að
veiða, ég er bara að lesa, svarar konan Já, en þú ert með allan búnað til
veiða, mótmælir veiðivörðurinn, ég verð fara með þig í land og skrifa þig
upp.

Ef þú gerir það, svarar konar, verð ég að kæra þig fyrir kynferðislega
áreitni.

En ég hef ekki einu sinni snert þig, segir vörðurinn afsakandi.

Það er alveg satt, en þú hefur allan búnað til þess!

Boðskapur: Deildu aldrei við konu sem les. Það mjög sennilegt að hún geti
líka hugsað!