Sveinn litli kemur með tómt glas í hendinni og spyr mömmu sína, Mamma er guð til? já elskan mín. Mamma er guð í næsta herbergi? já elskan mín. Mamma er guð hliðina á mér? já elskan mín. Mamma er guð í glasinu? já elskann mín. Sveinn slær á lokið á glasinnu og segir:ha ha núna náði ég þér.

————————————————— —————

Kennarinn: - Pétur, hvað gerist þegar maður leggst í baðker sem er fullt af vatni ? - Síminn hringir!

————————————————— —————

Af hverju eru ljósku brandararnir svona stuttir? Svo að karlmennirnir geti munað þá.

————————————————— —————

Jónas var í heimsókn á Akureyri og þurfti að fara með leigubíl. Á leiðinni sagði leigubílstjórinn við hann: “Heyrðu. á ég að segja þér smá gátu?” Jónas var alveg til í að fá hana. “Hvað er það sem er barn foreldra minna,en ekki bróðir minn né systir?”“ Jónas hugsaði í smá tíma en sagði svo:”Ég bara veit það ekki“ ”jú, það er ég sjálfur.“ Þegar Jónas kom heim aftur til Hafnafarðar sagði hann við konuna sína: Hver er það sem er barn foreldra minna, en ekki systir mín né bróðir?” Konan hans hugsaði sig lengi um en sagði svo “Það veit ég ekki” Jú það er einhver leigubílstjóri út á Akureyri!!

————————————————— —————

Öskureiður kúreki labbaði inn á krá og öskraði: “Hver málaði hestinn minn bláan?” Eftir smá stund stóð stór maður upp og sagði:“það var ég”. Eigandi hestsins svaraði þá skjálfraddaður:“Ég ætlaði bara að láta þig vita að hann er þurr, ef þú vildir mála aðra umferð”

——————————————- ———————–

Hefur þú heyrt um hafnfirðinginn sem fór í heilauppskurð? Heilinn hafnaði honum!!!

————————————————— —————

Afhverju sló bakarinn klukkuna ? Klukkan sló fyst…hahahaha

————————————————— —————

Af hverju stendur Mikki Mús aldrey á öndinni??? SVAR: Af því að hann er dýravinur

————————————————— —————