Nonni litli var aðeins farinn að velta fyrir sér lífinu og tilverunni og einn
daginn fór hann til pabba síns og spurði hann:

“Hvað eru stjórnmál?”

Pabbi hans svaraði:

“Jú sjáðu til, það er kannski best að ég útskýri það á þennan hátt:

Ég vinn fyrir fjölskyldunni og þess vegna skulum við kalla mig Auðmagnið.
Mamma þín stýrir heimilinu og ræður útgjöldunum og þess vegna skulum við kalla
hana Stjórnvöld. Við erum til þess að sinna þörfum þínum svo við skulum kalla
þig Fólkið. Við getum siðan haldið áfram og kallað barnfóstruna Öreiga. Litla
bróður þinn skulum við kalla Framtíðina.

Farðu nú og veltu þessu fyrir þér og athugaðu hvort þetta kemur ekki heim og
saman.

Þannig að Nonni litli fór í háttinn og hugsaði stöðugt um það sem pabbi hans
sagði honum.

Um nóttina vaknar hann upp við grátinn í bróður sínum. Þegar hann kemur inn í
herbergi hans finnur hann fljótt að bleian hans er blaut og mikil fýla af henni.
Hann fer inn í svefnherbergi foreldra sinna og finnur mömmu sína sofandi. Þá fer
hann að herbergi barnfóstrunnar og finnur að hurðin er læst. Hann kíkir inn um
skráargatið og sér föður sinn í rúminu með barnfóstrunni. Að lokum gafst Nonni
litli upp og fór aftur í herbergi sitt og sofnaði.

Næsta morgun segir hann við föður sinn. ”Pabbi, ég held núna að ég skilji hvað
stjórnmál ganga út á.“ Gott segir faðirinn, segðu okkur frá því. Þá sagði Nonni
litli: ” Jú sjáðu til, á meðan Auðmagnið riðlast á Öreigunum er Ríkisstjórnin
steinsofandi. Fólkið er hundsað og Framtíðin er í djúpum skít…