Jónas og leigubílstjórinn
Jónas var í heimsókn á Akureyri og þurfti að fara með leigubíl. Á leiðinni sagði leigubílstjórinn við hann: “Heyrðu. á ég að segja þér smá gátu?” Jónas var alveg til í að fá hana. “Hvað er það sem er barn foreldra minna,en ekki bróðir minn né systir?”“ Jónas hugsaði í smá tíma en sagði svo:”Ég bara veit það ekki“ ”jú, það er ég sjálfur.“ Þegar Jónas kom heim aftur til Hafnafarðar sagði hann við konuna sína: Hver er það sem er barn foreldra minna, en ekki systir mín né bróðir?” Konan hans hugsaði sig lengi um en sagði svo “Það veit ég ekki” Jú það er einhver leigubílstjóri út á Akureyri!!