Kona nokkur fer til lýtalæknis og biður um brjóstastækkun.
Lýtalæknirinn segir, “Þú ert ábyggilega með stærð 38-D. Af hverju viltu fá stærri?”
Og hún svarar, “Það er nú eiginlega ekki ég, en maðurinn minn er rosalega hrifinn af stórum brjóstum. Hann er búinn að vera að nuða í mér svo ég ákvað að kíkja á það.”
“Heyrðu, brjóstin á þér eru fín,” segir læknirinn, “og samviska mín bannar mér að fara að breyta því eitthvað. En ef endilega vilt, þá get ég mælt með aðferð til að stækka þau án aðgerðar. Á hverjum morgni, þá skaltu taka dálítinn slatta af klósettpappír og nudda honum á milli brjóstanna á þér nokkrum sinnum.”
“Stækka þau við þetta?” spyr konan.
“Auðvitað, sjáðu bara hvað það hefur gert við rassinn á þér!”