Kona ein fer í strætó með barnið sitt. Strætóbílstjórinn segir, “Þetta er ljótasta barn sem ég hef nokkurn tíma séð! Eeeww!” Konan fer aftast í strætóinn og sest niður alveg brjáluð. Hún segir við manninn hliðina hjá sér, “Bílstjórinn móðgaði mig!” Maðurinn sagði, “Farðu beint til hans og segðu honum til syndanna -svona farðu, ég skal halda á apanum þínum.”

Maður og vinur hans voru að spila golf einn daginn á nálægum golfvelli. Einn mannanna er að fara slá inn á flötina þegar hann sér langa jarðarfarar bílalest keyra fram hjá á nálægum vegi.
Hann stoppar í miðri sveiflu, tekur af sér golfhúfuna, lokar augunum og beygir sig niður í bæn.
Vinur hans segir, “Vá, þetta er það hugulsamasta og flottasta sem ég hef nokkurn tíma séð. Þú ert svo sannarlega góður maður”
Maðurinn svarar, “Núh við vorum nú gift í 35 ár”

Þegar NASA byrjaði fyrst að senda upp geimfara, uppgvötuðu þeir fljótt að kúlupennarnir myndu ekki virka í þyngdarleysi. NASA réðst auðvitað beint í málið og eyddi fleiri árum og milljörðum í að búa til penna sem gat skrifað í þyngdarleysi, á hvolfi, í vatni, á næstum hvaða yfirborði sem er, jafnvel á gler og hitastig á milli frostmarks og 300gráður á celsius. Rússar notuðuð blýant

Kona fer til læknis síns, mjög stressuð og áhyggjufull. Hún segir, “Læknir, líttu á mig. Þegar ég vaknaði í morgun, leit ég á mig og sá allt hárið mitt upp í loft og úfið, húðin var hrukkótt og olíukennd, augun mín voru blóðhlaupin og standandi út, og ég var eins og lík í framan. Hvað er að mér læknir?” Læknirinn lítur á hana í nokkrar mínútur og segir svo rólega, “Nú, ég get sagt þér að það er ekkert að augnsjón þinni…”

Af hverju hafa endur sundfit?
Til að slökkva elda.
Af hverju hafa fílar flata fætur?
Til að slökkva brennandi endur.

Hershöfðingi tók eftir að einn af hermönnum sínum hegðaði sér undarlega. Hermaðurinn tók upp hvaða bréf sem er, gretti sig og sagði, “Þetta er ekki það” og lét það svo aftur niður. Þetta hélt áfram í dágóðann tíma þangað til að hershöfðinginn ákvað að senda hann til geðlæknis. Geðlæknirinn komst að þeirri niðurstöðu að hermaðurinn væri geðveikur og skrifaði úrlausn hermannsins úr hernum á blað.
Hermaðurinn tók það upp, brosti og sagði, “Þarna er það”

;)

<br><br>php