Hvað þú getur dundað þér við að gera
í Hagkaup á meðan konan þín verslar

1. Náðu þér í 24 kassa af smokkum og
dreifðu þeim handahófskennt í innkaupakerrur
annarra þegar þeir eru ekki að horfa.

2. Stilltu allar verkjaraklukkurnar í
raftækjadeildinni þannig að þær fari
í gang á 5 mínútna fresti

3. Búðu til slóð með tómatsafa á
gólfið alveg að klósettunum.

4. Settu M&M í útsölurekka

5. Tjaldaðu í útivistardeildinni og
segðu öðrum viðskiptavinum að þeir séu
ekki boðnir nema þeir komi með kodda
úr rúmfatalagernum með sér.

6. Þegar starfsmaður snýr sér að þér
og býður þér aðstoð, farðu þá að
grenja og segðu ,,af hverju getur
fólk ekki bara látið mig í friði?“

7. Horfðu beint í öryggismyndavélina
og notaðu hana eins og spegil á meðan
þú borar í nefið.

8. Þegar þú handleikur beitta hnífa í
búsáhaldadeildinni spurðu þá
starfsmann hvort geðlyf séu seld í
búðinni

9. Stikaðu um verslunina með
grunsemdarsvip og sönglaðu hátt
byrjunarlagið úr ‘Mission Impossible’.

10. Feldu þig í fataslám og þegar
fólk skoðar föt, stökktu þá fram og
segðu hátt ,,Veldu mig.. veldu mig…..”

11. Þegar tilkynning hefur heyrst í
hátalarakerfinu taktu þá um höfuðið og
segðu ,,oh þessar raddir aftur…“

12. Farðu inn í mátunarklefa og
kallaðu hátt ,,hey það vantar
klósettpappír hér…”

Góða skemmtun!