Doddi hafði farið inn á hótel Ísland með strákunum og hitt þar hasagellu sem hann skemmti sér með fram á rauðan morgunn. Þegar hann kom heim var farið að birta, og þótt hann reyndi að laumst í rúmið á þess að konan hans tæki eftir, vaknaði hún og sá þegar hún var að rífa sig úr fötunum
,,Hvað eru nærfötin þín?“ spurði hún hvöss þegar hún tók eftir því að Doddi var ekki í neinu undir sparibuxunum.
,,Ja hver andskotinn!” kallaði Doddi upp yfir sig. ,,Ég hef verið rændur!“

Maður einn fær skelfilegan hausverk í vinnunni, ákveður að taka sér frí eftir hádegi og fer heim. Þegar hann kemur heim, fer hann inn í eldhús, finnur magnyl og tekur tvær töflur. Svo heyrir hann tónlist, fer upp á loft og kemur að konu sinni með dvergi. Hann öskrar á hana: ,,Hundrað sinnum hef ég fyrirgefið þér þetta endalausa framhjáhald. Þú lofaðir fyrir viku að hætta og svo kem ég að þér svona!” Konan lítur á hann og segir: ,,vertu ekki að æsa þig góði, sérðu ekki að ég er að reyna að minnka við mig?“

Ormur kemur upp úr moldinni á vorlagi, skimar í kring um sig og sér annan orm sem horfir á hann.
,,Ég elska þig” segir hann.
,,Láttu ekki svona, ég er hinn endinn á þér."
It's a cruel world out there…