Ég lenti í slysi um daginn og um leið í furðulegri lífsreynslu.

í slysinu hnéskeljarbrotnaði ég… það var mjög sárt og þegar Löggan mætti var ég æpandi af sársauka enda var hnéskelin á mér 5cm ofar en venja er, ég benti Löggunumm á skelina og sagði að hún væri ekki á réttum stað og hvað haldiði að einn gæjinn hafi sagt.. jæja hér er samtalið:

Ég: Áááái hnéð
Lögga: ertu OK
Ég: Nei I´m pretty fuckin far from Ok
Lögga:Nú hvar finnurðu til
Ég: Heyrðirðu ekki hvað ég sagði í hnénu
Lögga: ó er þetta vont(og potaði í hnéð)
Ég: Aaarrgggh ertu snar ertu að reyna að drepa mig
Lögga: Ok við ætlum að færa þig yfir í rúm geturðu rétt úr hnénu
Ég:ááááái
Lögga: ok ekki

Þar með var ég færður í sjúkrabíl og á sjúkrahús hér kemur samtal við eina hjúkkuna. (og má ég mynna á að ég er sárkvalinn)

Hjúkka: Jæja þú ert mættur á sjúkrahús
Ég: no shit?
Hjúkka: á ég að ná í eitthvað handa þér
Ég: Take one godamn guess!(ég quota oft á ensku)
Hjúkka: viltu eitthvað verkjastillandi
Ég:þú færð þrjú stig
Læknir: gefðu honum 10mg af Morfíni
Hjúkka: Skal gert
Ég: Morfín loksins, það var mikið ég var farinn að halda að ég ætti ekki að fá neitt hjeeerrrnnnaaaaa…. úff hvað er að geeeerastt … hæ sæta ert´a gera eikkva í kvöld

Þar með flaut ég burt á hvítu skýi og hérmeð spyr ég hvort að það ætti að leyfa svona fólki að stinga mann með sprautu?

Þið verðið að viðurkenna að þetta er býsna spaugilegt